|
|
Speki |
Andstreymið afhjúpar snillina, sem velgengnin dylur.
-- Hóras |
|
Fréttabréf |
Þú ert ekki áskrifandi að fréttabréfinu okkar. skráð/ur inn, en þú getur orðið áskrifandi að fréttabréfinu.

|
|
Á síðunni núna... |
áskrifendur: 808
gestir inni: 6
áskrifendur inni: 0
Þú ert óskráður notandi. Hægt er að gerast meðlimur með því að smella hérna |
|
Vefurinn vaknar kannski 2013 þegar Laxá verður í höndum heimamanna
 | Laxá veiðanleg 2013 ?
| | Af og til berast vefstjóra fyrirspurnir um það hvenær hafin verða að nýju greinaskrif á fluguveiði.is um stangveiði. Rekja má andlát vefsins til þess tímapunkts þegar Laxá í Þingeyjasýslu fór úr höndum heimamanna og verðlagið sem þegar var á þolmörkum hækkaði upp úr öllu valdi sem varð til þess að flestir hollvina Laxár hættu þar veiðum.
Vefstjóri hefur dregið stórlega úr stangveiði eftir þann tímapunkt og tók ákvörðun um að leggja stangveiðina í Laxá á hilluna þar til a.m.k. 2013 þegar samningur við leigutaka rennur út og vonarglæta myndast um að áin fagra fari aftur í hendur heimamanna. Ef leiðrétting verður gerð á verðlagi árinnar sem gerir venjulegu fólki kleift að veiða í Laxá mun undirritaður hrista fram blek í veiðipennann. 1117 lesendur | | Áherslubreytingar á flugveiði.is Finna má nokkur hundruð greina með fróðleik um stangveiði hér á fluguveiði.is. Undirritaður hefur tekið þá ákvörðun að eyða út myndasafni vefsins og breyta ritstjórnaráherslum á þann veg að hér eftir verður ekki fjallað um fréttir af stangveiði, heldur einungis fróðleik um stangveiði sem stenst tímans tönn. Lesa meira... 2456 lesendur | | Veiðar á villtum fuglum og spendýrum Hjá JPV útgáfu er komin út bókin Veiðar á villtum fuglum og spendýrum eftir Einar Guðmann, sérfræðing hjá veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar og umsjónarmann skotvopnanámskeiða stofnunarinnar. Bókinni er ætlað að uppfylla tvö meginmarkmið; annars vegar að efla þekkingu hins almenna skotveiðimanns á veiðum og bráð og hins vegar að safna saman í eina bók öllu því sem veiðimönnum ber að kunna til að standast hæfnipróf. Hér er því kominn saman geysimikill fróðleikur um veiðimennsku og villibráð og er óhætt að segja að bókin sé ómissandi fyrir alla íslenska veiðimenn. Lesa meira... 3848 lesendur | | Skotvopnabókin - skyldulesning skotvopnaeigenda Skotvopnabókin eftir Einar Guðmann fjallar um meðferð og eiginleika skotvopna með sérstakri áherslu á öryggisatriði. Fjölmargar skýringarmyndir eru í bókinni og ennfremur er bókin gagnlegt uppsláttar- og fróðleiksrit fyrir alla skotvopnaeigendur.
Hægt er að panta bókina beint frá höfundi. Lesa meira... 9633 lesendur | | Leyndardómar þurrfluguveiðinnar Dulúð og leyndardómar eru órjúfanlegur hluti af fluguveiði. Hvergi endurspeglast þessi dulúð þó betur en þegar þurrfluguveiði er annars vegar. Það leikur ekki vafi á því að til eru aðferðir sem afla betur en þurrfluguveiði, en engin aðferð krefst jafn mikils sjálfstrausts af veiðimanninum. Á móti er heldur engin aðferð sem vekur jafn sterk viðbrögð hjá veiðimanninum þegar hann sér fiskinn rísa upp að yfirborðinu og taka fluguna. Lesa meira... 5008 lesendur | | Niðurstöður rannsókna á hlutfalli laxa sem veiðast aftur eftir sleppingu Borgar Páll Bragason sem er að ljúka BS prófi af landnýtingarbraut birti fyrir skemmstu lokaritgerð sína við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri sem fjallaði um endurveiði laxa í íslenskum laxveiðiám. Nefnist ritgerðin Veiða/Sleppa en í henni kemur fram að um 20 – 30% laxa sem stangaveiðimenn sleppa veiðist aftur en einungis lítið brot veiðist í þriðja sinn. Fjallað er um ýmislegt sem tengist þeirri umdeildu aðferð sem veiða og sleppa aðferðin er meðal stangaveiðimanna. Lesa meira... 3205 lesendur | | Dýrar öndunarvöðlur ofmetnar Stangveiðimenn eru margir sammála um að öndunarvöðlur eru ekki sú draumalausn sem þær þóttu fyrst þegar þær komu á markaðinn. Léttar, meðfærilegar og þægilegar, en um leið dýrar og endast skamman tíma. Lesa meira... 7340 lesendur |
|
Prenthæf síða |
|
|
|
|
Skilaboð |
|
|
Skilaboð |
|
|
Language |
Veldu tungumál viðmótsins:
 |
|