Vorveiði 2026

Fyrstu dagarnir – 31. mars til 3. apríl

Við hófum leikinn í opnunarhollinu okkar þar sem mætt var í hús 31. mars. Veiðin sjálf fór svo fram dagana 1.–3. apríl á fjölbreyttum og skemmtilegum svæðum: Presthvammur, Múlatorfa, Syðra Fjall, Reykjadalsá, Geitafellsá og Mýrarkvísl.

Meirihluti Mýrarkvíslar og efri hluti Reykjadalsár voru enn að stórum hluta á kafi í snjó og þessar ár því víða óveiðanlegar fyrstu dagana en eru núna að opnast.

Fiskur veiddist á öllum svæðum, en Syðra Fjall stóð upp úr í þetta skiptið. Þar komu t.d. 20 fiskar á land á einni vakt á tvær stangir og á fyrstu vakt 1. apríl kom einnig glæsilegur 76 cm fiskur á land – Gengur sjóbirtingur í Laxá?

76cm fiskurinn sem vieddist á Syðra Fjalli

Við fengum allar mögulegar gerðir af veðri, alveg eins og við viljum hafa þetta í vorveiðinni!

    1. apríl: sól og blíða
    1. apríl: rok og skýað en hlýtt
    1. apríl: logn og smá frost, snjókoma og sól á köflum

Múlatorfa var í fyrsta skipti opnuð 1. apríl og var mjög gaman að prófa hana á þessum árstíma. Þar veiddist vel þar sem djúpt og hægt vatn var að finna enda vatnshiti ekki nema 0,8°C á morgnana.

Nú hefur hins vegar hlýnað aðeins og vatnshiti er farinn að toppa í 3–4°C síðdegis. Það eru hlýindi í kortunum og það er vel þekkt að þegar árnar fara fyrst að hlýna á vorin getur veiðin tekið góðan kipp.

Litlaá opnaði með látum og skilaði opnunarhollinu um 250 fiskum, með meðalstærð í kringum 59 cm – frábær byrjun þar á bæ.

Einnig fengum við fréttir að í síðasta holli  í Lituá voru meðal annars byrjendur að taka sýn fyrstu flugu köst og voru fyrstu flugu fiskar þeirra allra 60cm og yfir.

Kristinn Þeyr með glæsilegan fisk úr litluá

Stórir fiskar eru gáfaðir fiskar. Þeir eru yfirleitt orðnir gamlir, reyndir og vita nákvæmlega hvað þeir vilja

Þessa dagana eru að veiðast virkilega stórir fiskar. Þar á meðal var glæsilegur 84 cm sjóbirtingur sem veiddist í Brunná – algjör draumafiskur og minning sem lifir lengi. 

Kristinn Þeyr með 84cm birting sem hann veiddi í Ármótunnum í Brunná

Fleyri myndir frá síðustu dögum