Dorgveiði á Langavatni og Kringluvatni í Reykjahverfi

Það var ótrúlega gaman að dorga í desember fyrir áramót. Þrátt fyrir hlýindin var ennþá 30–40 cm þykkur ís á Langavatni og Kringluvatni, á meðan Ljósavatn og Vestmannsvatn voru á tæpasta vaði. Það kemur þó ekki á óvart þar sem Langavatn og Kringluvatn liggja í talsvert meiri hæð. Langavatn er í um 158 metra hæð yfir sjávarmáli og Kringluvatn í um 270 metra hæð, á meðan Ljósavatn er aðeins í rúmlega 100 metra hæð yfir sjávarmáli. Þó hæðarmunurinn virðist ekki mikill getur hitamunurinn verið töluverður.

Dorgveiði á ljósvatni

Svona var staðan ljósvatni einn morguninn, norður hlutinn var auður.

Það sem gerði dorgveiðina sérstaklega skemmtilega var að enginn snjór var á vötnunum flesta dagana né slóðunum að þeim, sem gerði það mjög auðvelt að keyra alveg að vötnunum og velja veiðistaði út frá botnlagi. Við leituðum yfirleitt að köntum þar sem snöggdýpkaði eða svæðum með stóru grjóti eða gróðri, sem reyndust gefandi staðir.

Dorgveiði á Langavatni í Reykjahverfi

ísinn eins og skauta svell.

Fyrir utan veiðina sjálfa var einfaldlega ótrúlega næs að vera úti. Það var nánast logn í öll skiptin og hitastig yfir frostmarki, þannig að okkur var hlýtt allan tímann. Dagarnir voru einnig einstaklega fallegir. Við mættum á ísinn þegar fór að birta og himininn var appelsínugulur frá fyrstu birtu og allt þar til tók að dimma aftur.

Veiðimaður með stóran urriða sem hann veiddi í Kringluvatni í Reykjahverfi

Vænn urriði sem Gunnlaugur Gunnþórsson veiddi í Kringluvatni í desember.

Við notuðum aðallega rækju og bleikt PowerBait í beitu. PowerBait er leirkennd beita með lykt og glimmeri, og bæði urriðinn og bleikjan tóku þetta grimmt. Dorgveiðin í desember reyndist því bæði árangursrík og ótrúlega skemmtileg upplifun.

Ungir veiðimenn ánægðir með aflan á Kringluvatni. Dorgveiði er fullkomið fjölskyldu sport.

Mikið grisjunarstarf hefur verið unnið í Kringluvatni síðustu ár með góðum árangri, Vatnið var yfir fullt af smá bleikju en nú eru þær aðeins færri en hafa greinilega stækkað. í Kringluvatni má finna væna urriða eins og þennan Sem Gunnlaugur heldur á hér fyrir ofan, en við heyrum sögur af trölla fiskum þarna reglulega. Mjög stór urriði tók hjá veiðimanni sem var að dorga í desember, veiðimaðurinn setti í hann en hann festist ekki. Agnið var á mjög grunnu vatni svo fiskurinn sást greinilega og lýsti veiðumaðurin honum þannig að hann hefði ekki komist upp um holuna.

Staðirnir sem hafa gefið okkur best.

Langavatn í Reykjahverfi

Staður 1.  Þetta er jafnan gjöfulasti staðurinn, og gefur hann aðalega bleikju en einn og einn urriða. Þarna er mjög grunnt og yfirleitt ekki meira en meter frá ísnum og niður í botn svo maður sér yfirleitt þegar fiskurinn kemur og skoðar agnið. ATH þarna þarf að fara varlega því ísin er oft aðeins þinnri á þessu svæði að sökum ánna sem í og renna úr vatninu.

Staður 2. Þarna er trickið að finna kantinn þar sem snögg dýpkar og hafa beituna á miðjum kantntinum. Lítill lækur rennur í vatnið úr gilinu á myndinni og þarf að varast að far ekki of nálægt honum því þar getur ísinn verið þinnri.

Staður 3. er svolítið hit or miss, þarna er um 4 – 7 metra dýpi en við höfum stundum hitt á bleikju torfur þarna. Yfirleitt gengur best að hafa beituna um 2 metra frá botninum.

Staður 4. Þarna er mikill gróður og góður kanntur stutt frá landi. Þarna veiðast jafnan stærstu urriðarnir í vatninu og bleikja í bland.

 

Kringluvatn

Þó fiskur finnist víðar í vatninu þá hefur okkur gengið lang best að vera á kanntinum sem er merktur á myndinni. þá helst Norðan eða (vinstra) megin við ánna og fengum við fiska á meters dýpi og niður í 3 metra en um leið og við fórum dýpra gerðist ekki mikið. Sama gildir hér eins og annarstaðar þar sem rennur í vötnin, þarf að fara varlega þar sem íssinn er þinnri þar sem áin kemur út í. Þarna fæst bleikja jafnt og urriðar sem geta verið mjög vænir!

Falleg bleikja í sólsetri á Kringluvatni í Reykhverfi

Veiðileyfi í kringluvatn fást hér!

Veiðileyfi í Langavatn fást hér!