Endurreisn Mýrarkvíslar: hvernig búsvæðavinna og sleppiskylda styrktu laxastofninn

Veiðitölur úr Mýrarkvísl frá 1974 til 2025 sýna mjög áhugaverða þróun. Áin fór úr nærri 500 laxa veiði og niður í um 40 laxa. En hefur síðan þá verið á stabílli uppleið. 

Veiðitölur sýna að seiðasleppingar, hrognagröftur, veiðistaðagerð  og sleppiskylda sem tekin var upp árið 2014 hafi haft mikil áhrif á styrkingu laxastofnsins.

Saga árinnar

Á síðustu áratugum 20. aldar var Mýrarkvísl þekkt sem afkastamikil lax veiði á

Á tímabilinu 1974–2006 var meðalveiði um 230 laxar á ári og mörg mjög góð veiðiár á þeim tíma.

Metár árinnar var 1986 þegar veiddust 490 laxar. Önnur sterk ár voru meðal annars:

  • 1985 – 388 laxar
  • 1992 – 390 laxar
  • 2004 – 357 laxar
  • 2005 – 385 laxar
Veiðimenn kasta fyrir lax í mýrarkvísl veiðistaður 26

Lægð í  lax veiðinni

Eftir 2006 dró verulega úr fjölda veiddum laxa í ánni.

Á árunum 2007–2013 var meðalveiði aðeins um 74 laxar á ári, og árið 2013 veiddust aðeins 48 laxar, sem er lélegasta lax veiðiár í sögu árinnar.

Líkt og í mörgum öðrum lax veiði ám í Norður-Atlantshafi hefur þróunin líklega tengst:

  • breyttum aðstæðum í sjó
  • veikari hrygningarstofni náttúrulegum
  • Of miklu drápi 

Áður en veiðistaða gerð var hafin fyrir ofan laxa stiga voru margir lykil staðir í ánni í gilinu í neðri hluta árinnar þar sem hægt var að sjón renna á hvern einasta fisk í hylnum og þannig haft veruleg áhrif á stofninn þegar hver einasti fiskur var drepinn.

falleg laxa hrygna veidd á fallegum veiðistað í gilinu í mýrarkvísl

Sleppiskylda tekin upp 2014

Árið 2014 var tekin upp 100% sleppiskylda á laxi í Mýrarkvísl.

Fram að því var heimilt að drepa lax, en eftir þessa breytingu er öllum laxi sleppt aftur í ána.

Þessi breyting hefur aukið fjölda laxa sem ná að hrygna í ánni og þar með:

  • fjölgað hrygningarpörum
  • aukið hrognaframleiðslu
  • aukið seiðaframleiðslu

Áhrif slíkra breytinga koma fram nokkrum árum síðar, þegar ný kynslóð laxa snýr aftur til árinnar.

Mýrarkvísl

Skýr merki um framför

Skýr merki um aukningu í veiði komu fram 2021, þegar veiðin fór aftur yfir 200 laxa.

Árin þar á eftir staðfestu þróunina.

Ár Veiddir laxar
2022 272
2023 283
2024 406
2025 203

Árið 2024 stendur sérstaklega upp úr, þegar 406 laxar veiddust, sem gerir það að næst besta veiðiári í sögu árinnar og besta ári í nær 40 ár.

Við erum að nálgast veiðina eins og hún var þegar þegar áin var upp á sitt besta

Langtímagreining sýnir að framleiðsla árinnar er aftur að nálgast þau gildi sem sáust á bestu árum hennar.

Líklegt er að náttúruleg framleiðslugeta Mýrarkvíslar sé:

250–400 laxar á ári

með einstök toppár sem geta farið yfir 400 laxa.

Mikilvægi búsvæða

Samhliða sleppiskyldu hefur verið unnið að:

  • bættum hrygningarsvæðum

     

  • aukinni seiðaframleiðslu

     

Slík vinna skiptir miklu máli því búsvæði ákvarða hversu mikið af seiðum áin getur framleitt.

Horft til framtíðar

Þrátt fyrir að laxastofnar séu háðir aðstæðum í sjó og öðrum náttúrulegum þáttum gefa veiðitölur síðustu ára tilefni til bjartsýni.

Áin sem var komin niður í innan við 100 laxa veiði á ári er nú aftur farin að gefa yfir 250–400 laxa á góðum árum.

Mýrarkvísl er því gott dæmi um hvernig góð veiðistjórnun, búsvæðavinna og sleppiskylda geta styrkt laxastofn.