Laxá í Aðaldal – Ytra Fjall

2 stanga svæði með urriðaveiði á heimsmælikvarða og laxavon!



Veiðisvæði Ytra Fjalls í Laxá í Aðaldal er fornfrægt stórlaxasvæði.  Um að ræða vesturbakka Laxár,  frá Girðingu við Laxhólma og niður að Tvíflúð.  Svæðið hefur í gegnum tíðina verið hluti af Nesveiðum. Vinsamlega athugið að Óseyri fylgir ekki með svæðinu.

Frábær fjölskylduparadís, með möguleika á skemmtilegu veiðihúsi, sem bóka þarf sérstaklega.


Veiðisvæðið:

Veiðimenn sjá sjálfir um að skipta svæðinu sín á milli.


Veiðireglur:


Seldar eru 2 stangir, hálfan dag í senn.

7-13 og 16-22 en eftir 15. ágúst 7-13 og 15-21.

Fluga eingöngu

Sleppa þarf öllum laxi en 2 fiska kvóti er á urriða á stöng á hálfum degi.


Veiðihús:

Veiðimönnum er bent á gistingu í nærliggjandi gistihúsum, Þinghúsinu, sími 464 3695, Gistihúsinu Brekku, sími 899 4218 ef menn vilja hafa meiri þægindi.


Veiðitímabil:

Veiðitímabil hefst 1. maí og því líkur 20. september.


Annað:


Skilmálar:

Veiðileyfi fást ekki endurgreidd. Kaupandi skuldbindur sig til að skrá alla veiði samviskusamlega í þar til gerða veiðibók.