Langavatn í Reykjarhverfi

10 stanga silungsviðisvæði stórir urriðar og góð bleikju veiði!

Vatnaveiði, bleikja og urriði. Ísdorg

Langavatn er í Reykjahverfi á milli Mývatns og Húsavíkur.  Í vatninu eru bæði urriði og bleikja og jafnvel stöku lax.   Langavatn er hluti af hinu viðfeðma vatnakerfi Laxár í Aðaldal.  Úr vatninu rennur Mýrarkvísl niður í Laxá og þaðan til sjávar.  Í vatnið fellur svo Geitafellsá, en hún á svo upptök upptök sín í Kringluvatni. 

Veiðireglur

Allt löglegt agn er leyft.
Veiðitímabilið er 1. janúar til 31.  desember.
Daglegur veiðitími er 06:00-24:00
 

Veiðihús

Veiðihús fylgir ekki með.