Laxá í Aðaldal – Árbót
2 stanga svæði með urriðaveiði á heimsmælikvarða og laxavon!
Veiðisvæði Árbótar í Laxá í Aðaldal er fornfrægt stórlaxasvæði. Um að ræða austurbakka Laxár, á milli Nesveiða og Laxamýrarsvæða. Svæðið hefur í gegnum tíðina ýmist verið hluti af Nesveiðum eða Laxamýri.
Frábær fjölskylduparadís, með möguleika á skemmtilegu veiðihúsi, sem bóka þarf sérstaklega.
Veiðisvæðið:
Veiðimenn sjá sjálfir um að skipta svæðinu sín á milli.
Veiðireglur:
Seldar eru 2 stangir, hálfan dag í senn.
7-13 og 16-22 en eftir 15. ágúst 7-13 og 15-21.
Fluga eingöngu
Sleppa þarf öllum laxi en 2 fiska kvóti er á urriða á stöng á hálfum degi.
Veiðihús:
Veiðihúsið Vörðuholt fylgir ekki með leyfunum en hægt er að bóka það sérstaklega.
Það er fallegt og rúmgott með uppábúnu fyrir 6 manns í þremur tveggja manna herbergjum.
Veiðimenn fá húsið afhent kl 15:00 og þurfa að skila af sér fyrir kl 13:00 daginn eftir.
Veiðitímabil:
Veiðitímabil hefst 1. apríl og því líkur 20. september.
Annað:
Skilmálar:
Veiðileyfi fást ekki endurgreidd. Kaupandi skuldbindur sig til að skrá alla veiði samviskusamlega í þar til gerða veiðibók.