Laxá í Aðaldal – Staðartorfa
3 stanga svæði með urriðaveiði á heimsmælikvarða og laxavon!
Laxá í Aðaldal er ein frjósamasta á landsins. Neðan til eru hin þekktu laxasvæði en ofar ræður urriðinn ríkum. Staðartorfa er vesturbakki efsta hluta urriðasvæðanna neðan virkjunnar í Laxá í Aðaldal. Mjög skemmtilegt fjölskyldusvæði með mikilli náttúrufegurð og hreint frábært þurrflugusvæði þegar veður leyfir.
Veiðisvæði Staðartorfu er vesturbakkinn frá Laxárvirkjun niður að veiðimörkum við Múlatorfu við Kálfalæk
Veiðisvæðið:
Veiðimenn sjá sjálfir um að skipta svæðinu sín á milli.
Veiðireglur:
Seldar eru 3 stangir, hálfan dag í senn.
7-13 og 16-22 en eftir 15. ágúst 7-13 og 15-21.
Fluga eingöngu
Sleppa þarf öllum laxi en 2 fiska kvóti er á urriða á stöng á hálfum degi.
Veiðihús:
Ekkert veiðihús er á svæðinu en veiðimönnum er bent á gistingu í nærliggjandi gistihúsum, Þinghúsinu, sími 464 3695, Gistihúsinu Brekku, sími 899 4218.
Veiðibók er á staðnum.
Veiðitímabil:
Veiðitímabil hefst 20. maí og því líkur 20. september.
Annað:
Skilmálar:
Veiðileyfi fást ekki endurgreidd. Kaupandi skuldbindur sig til að skrá alla veiði samviskusamlega í þar til gerða veiðibók.