Laxá í Aðaldal – Syðra Fjall

2 stanga svæði með urriðaveiði á heimsmælikvarða og laxavon!



Syðra Fjall er vesturbakki neðsta hluta urriðasvæðanna neðan virkjunnar í Laxá í Aðaldal.  Mjög skemmtilegt fjölskyldusvæði með mikilli náttúrufegurð og hreint frábært þurrflugusvæði þegar veður leyfir.


Veiðisvæðið:

Veiðimenn sjá sjálfir um að skipta svæðinu sín á milli.


Veiðireglur:


Seldar eru 2 stangir, hálfan dag í senn.

7-13 og 16-22 en eftir 15. ágúst 7-13 og 15-21.

Fluga eingöngu

Sleppa þarf öllum laxi en 2 fiska kvóti er á urriða á stöng á hálfum degi.


Veiðihús:

Ekkert veiðihús er á svæðinu en veiðimönnum er bent á gistingu í nærliggjandi gistihúsum, Þinghúsinu, sími 464 3695, Gistihúsinu Brekku, sími 899 4218.

Veiðibók er á staðnum.


Veiðitímabil:

Veiðitímabil hefst 1. apríl og því líkur 20. september.


Annað:


Skilmálar:

Veiðileyfi fást ekki endurgreidd. Kaupandi skuldbindur sig til að skrá alla veiði samviskusamlega í þar til gerða veiðibók.