Laxá í Aðaldal – Efra og Neðra Hraun

Laxá í Aðaldal – Efra og Neðra Hraun

4 stanga svæði með urriðaveiði á heimsmælikvarða og laxavon!



Hraun er urriðasvæði rétt neðan virkjunnar í Laxá í Aðaldal austan við ána á móti Staðartorfu. Mjög skemmtilegt fjölskyldusvæði með mikilli náttúrufegurð og hreint frábært þurrflugusvæði þegar veður leyfir.


Veiðisvæðið:

Veiðimenn sjá sjálfir um að skipta svæðinu sín á milli.


Veiðireglur:


Seldar eru 4 stangir, 2 stangir á hvoru svæði hálfan dag í senn.

7-13 og 16-22 en eftir 15. ágúst 7-13 og 15-21.

Fluga eingöngu

Sleppa þarf öllum laxi en 2 fiska kvóti er á urriða á stöng á hálfum degi.


Veiðihús:

Veiðimönnum er bent á gistingu í nærliggjandi gistihúsum, Þinghúsinu, sími 464 3695, Gistihúsinu Brekku, sími 899 4218 ef menn vilja hafa meiri þægindi.


Veiðitímabil:

Veiðitímabil hefst 1. júní og því líkur 20. september.


Annað:


Skilmálar:

Veiðileyfi fást ekki endurgreidd. Kaupandi skuldbindur sig til að skrá alla veiði samviskusamlega í þar til gerða veiðibók.