Laxá í Aðaldal Presthvammur

2 stanga svæði með urriðaveiði á heimsmælikvarða og laxavon!

Urriðaveiði með stórlaxavon – þurrfluguparadís

Presthvammur er austurbakki efsta hluta urriðasvæðanna neðan virkjunnar í Laxá í Aðaldal.  Mjög skemmtilegt fjölskyldusvæði með mikilli náttúrufegurð og hreint frábært þurrflugusvæði þegar veður leyfir.

Veiðireglur

  1. maí – 20. september.
    Seldar eru 2 stangir, hálfan dag í senn.
    7-13 og 16-22 en eftir 15. ágúst 7-13 og 15-21.
    Fluga eingöngu
    Sleppa þarf öllum laxi en 2 fiska kvóti er á urriða á stöng á hálfum degi

Veiðihús

Gisting í kofa með rennandi vatni og salerni er innifalin.  Í kofanum eru áhöld þess að hita og neyta matar. Þar eru tvö rúm og hægt er að tjalda eða setja upp tjaldvagn innan girðingar við veiðikofann.  Veiðimönnum er bent á gistingu í nærliggjandi gistihúsum, Þinghúsinu, sími 464 3695, Gistihúsinu Brekku, sími 899 4218 ef menn vilja hafa meiri þægindi.

Tilboð verður í allt sumar á gistingu á  Brekku fyrir veiðimenn .
5.000 kr á mann í húsi með eldhúsi, miðað við tvo í herbergi.  Uppábúið og þrif innifalin.

Rafræn veiðibók á Veiðitorg.is og einnig er veiðibók á staðnum.

Flugur

Þurrflugur – Black gnat, Evrópa, Royal Coachman, Adams, Svartur maur
Votflugur – Alder, Watwon´s Fancy, Pheasant tail, Peacock
Púpur – MME, Watson´s Fancy, Pheasant tail, Peacok, Rollan, Glóðin, Krókur
Straumflugur – Black ghost, Dentist, Rektor, Svartur Dýrbítur, Nobblerar

Annað

Bátur er á svæðinu og skal það ítrekað að öll notkun hans er á ábyrgð veiðimanna sjálfra og eru menn beðnir um að fara gætilega við notkun hans. Þá skal það tekið fram að oft getur verið talsvert slýrek í ánni, sérstaklega síðsumars og þá verða steinar hálir og skyggni í vatninu slakt. Ástæða er til þess að biðja veiðimenn að fara varlega við slíkar aðstæður.