Kringluvatn í Reykjahverfi

10 stanga silungsveiðisvæði, stórir urriðar og góð bleikju veiði!


Kringluvatn er í Reykjahverfi á milli Mývatns og Húsavíkur.  Í vatninu eru bæði urriði og bleikja og jafnvel stöku lax.   Kringluvatn er hluti af hinu víðfeðma vatnakerfi Laxár í Aðaldal.  Úr vatninu rennur Kringlugerðisá sem verður að Geitafellsá sem rennur í Langavatn. Úr Langavatni rennur svo Mýrarkvísl niður í Laxá og þaðan til sjávar.


Veiðisvæðið:

Góð dorgveiði er í vatninu á veturna.

Leyfilegt er að veiða í öllu vatninu.


Veiðireglur:

Allt löglegt agn er leyft.

Leyfilegt er að hirða allan fisk sem veiðist en eru veiðimenn þó beðnir um að sleppa stórum urriðum.

Veiðitímabilið er 1. janúar til 20.  Október.

Daglegur veiðitími er 06:00-24:00


Veiðihús:

Möguleiki er á að fá gistingu á Langavatni Guesthouse sjá nánar hér http://www.langavatn.com/


Veiðitímabil:

Allt árið.


Annað:

Mikið grisjunar starf hefur verið unnið í Kringluvatni síðustu ár með góðum árangri og er bleikjan búin að ná sér á strik aftur eftir og er þannig farið að veiðast bleikjur sem teljast góður matfiskur. Áfram verður haldið að grisja vatnið og geta því veiðimenn búist við að sjá net úti á vatninu í einstaka tilfellum.


Skilmálar:

Veiðileyfi fást ekki endurgreidd. Kaupandi skuldbindur sig til að skrá alla veiði samviskusamlega í þar til gerða veiðibók.