Laxá í Aðaldal – Ytra Fjall
2 stanga svæði með urriðaveiði á heimsmælikvarða og laxavon!
Veiðisvæði Ytra Fjalls í Laxá í Aðaldal er fornfrægt stórlaxasvæði. Um að ræða vesturbakka Laxár, frá Girðingu við Laxhólma og niður að Tvíflúð. Svæðið hefur í gegnum tíðina verið hluti af Nesveiðum. Vinsamlega athugið að Óseyri fylgir ekki með svæðinu.
Frábær fjölskylduparadís, með möguleika á skemmtilegu veiðihúsi, sem bóka þarf sérstaklega.
Veiðisvæðið:
Veiðimenn sjá sjálfir um að skipta svæðinu sín á milli.
Veiðireglur:
Seldar eru 2 stangir, hálfan dag í senn.
7-13 og 16-22 en eftir 15. ágúst 7-13 og 15-21.
Fluga eingöngu
Sleppa þarf öllum laxi en 2 fiska kvóti er á urriða á stöng á hálfum degi.
Veiðihús:
Veiðimönnum er bent á gistingu í nærliggjandi gistihúsum, Þinghúsinu, sími 464 3695, Gistihúsinu Brekku, sími 899 4218 ef menn vilja hafa meiri þægindi.
Veiðitímabil:
Veiðitímabil hefst 1. maí og því líkur 20. september.
Annað:
Skilmálar:
Veiðileyfi fást ekki endurgreidd. Kaupandi skuldbindur sig til að skrá alla veiði samviskusamlega í þar til gerða veiðibók.